Krónan: stjórnarliðar koma upp um sig

\"Ekki fer á milli mála að þunginn  í ádeilunni á peningastefnuna innan úr þingflokki forsætisráðherra fer vaxandi stig af stigi. Eftir venjulegum pólitískum lögmálum þætti þetta miklum tíðindum sæta og vera til marks um grimm innbyrðis átök.\"

Þetta skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á Hringbraut þar sem hann vitnar í skrif Ásmundar Einars Daðasonar, aðstoðarmanns forsætisráðherra fyrr í vikunni um hávaxtastefnuna hér á landi og vandann við verðtrygginguna, en þann heimatilbúna vanda segjist hann vilja leysa án upphrópana. Þorsteinn segir það sæta tíðindum að sjálfsgagnrýni af þessu tagi komi innan úr röðum stjórnarflokkanna: \"Eftir venjulegum pólitískum lögmálum þætti þetta miklum tíðindum sæta og vera til marks um grimm innbyrðis átök.\"

Hann telur samt skýringuna vera aðra: \"Hún er sú að þetta sé birtingarmynd þeirrar popúlísku hugmyndafræði sem Framsókn hefur fylgt í rúm sex ár. Orð og ábyrgð eru þá aðskilin og ótengd fyrirbæri. Þess vegna er sennilegast að forsætisráðherra láti  sér vel líka það sem aðrir líta á sem óvægna sjálfsgagnrýni.\"

Þorsteinn sér íróníuna í þessu öllu saman: \"Að vísu er forsætisráðherra nægilega skynugur til að vita að hann yrði aðhlátursefni ef hann talaði á þennan veg sjálfur.  En hann telur það greinilega sleppa að þingmenn hans og aðstoðarmenn tali með þessum hætti um árangursleysi ríkisstjórnar um mótun framtíðarstefnu í peningamálum.\"

Hann segir nýja ríkisstjórn hafa lofað því að krónan væri lokasvar við efnahagsspurningum þjóðarinnar; hægt væri að halda henni og tryggja um leið stöðugleika. Æpandi efinn innan úr stjórnarflokkunum, einkum Framsókn, sé því fréttaefni í sjálfu sér - og sömuleiðis óþreyjan sem hljóti að teljast eðlileg í ljósi þess að ekkert hafi verið aðhafst í peningamálum þjóðarinnar í tvö heil ár, þrátt fyrir fögur fyrirheitin: \"Loforð Framsóknar um að afnema verðtryggingu á fyrstu mánuðum stjórnarsamstarfsins er enn ekki efnt eins og þingmenn Framsóknar þrástagast á. Það virðist heldur ekki standa til.\"

Þorsteinn bendir á að betur færi að menn tækju mark á eigin orðum: \"Það hefur komið á daginn að full og gild rök stóðu á bak við ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um athugun á öðrum kostum í gjaldmiðilsmálum. Með hæfilegri einföldun má segja að einn af verstu rembihnútunum í pólitíkinni sé sá að það vantar þingflokk til að framkvæma þessa landsfundarályktun.\"