Krónan rýrnað um 99,95% frá fullveldi

Frá því árið 1920, þegar íslenska krónan var á pari við dönsku krónuna, hefur íslenska krónan rýrnað um 99,95% af verðgildi sínu. Gengi dönsku krónunnar er í dag um 20 krónur en ef tekið er tillit til myntbreytingarinnar árið 1981, má í rauninni segja að munurinn sé tvöþúsundfaldur. Þetta kemur fram í svari Ara Skúlasonar hagfræðings hjá Landsbankanum, sem svaraði fyrirspurn á upplýsingaveitunni spyr.is þess efnis hversu mikið íslenska krónan hefði tapað af verðgildi sínu í samanburði við dönsku krónuna á þessari tæpu öld. 


Í svari Ara segir ,,Það þýðir að verðgildi krón­unn­ar gagn­vart þeirri dönsku er því aðeins 0,05% af því sem það var árið 1920, sem jafn­gild­ir rýrn­un um 99,95% á þessu 90 ára tíma­bili. Með öðrum orðum má segja að sú íslenska sé næstum horfin." 


Með öðrum orðum má því ef till segja að fullveldistíminn hafi leikið innlenda mynt harla grátt.