"Ein helsta ástæðan fyrir því uppnámi sem nú er á vinnumarkaðnum á rætur í því að ríkisstjórnin hefur ekki í tvö ár svarað spurningum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins um framtíðarstefnuna í peningamálum," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is. Hann segir með ólíkindum hvað hún hafi verið sveipuð mikilli leynd í svo langan tíma. En nú sé stundarglas leyndarinnar tómt. "Aðilar vinnumarkaðarins ættu því að geta lagt þaulhugsaða og velútfærða stefnu um framtíðina í peningamálum til grundvallar við endurnýjun kjarasamninga, " skrifar Þorsteinn áfram.
Hann minnir á að höftin hafi verið sett á til þess að halda uppi fölsku gengi krónunnar sem hafi verið óhjákvæmilegt í þeim ærlega tilgangi að verjast meira falli í lífskjörum en þá þegar var orðið. Höftin séu hins vegar skaðleg til lengdar og valdi vaxandi óútreiknanlegu tjóni með hverjum degi sem líði.
"Krónan er mælikvarði á hvort áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og sex ár með tveimur ríkisstjórnum, annarri yst til vinstri og hinni yst til hægri, hafa dugað til að koma hlutunum í jafnvægi á ný. Verði viðskipti með krónuna frjáls og haldi hún verðgildi sínu með sambærilegum vöxtum og í grannlöndunum hefur það tekist. Fari hins vegar svo að annars konar takmarkanir verði áfram nauðsynlegar á gjaldeyrisviðskiptum eða falli gengi krónunnar er ætlunarverkið enn í landi dagdraumanna," skrifar fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og bætir við: "Pólitíska aðalatiðið er að slíkar afskriftir hverju nafni sem þær nefnast á endanum flæði ekki sem nýjar krónur inn í hagkerfið. Það jafngilti seðlaprentun. Verðgildi hverrar krónu sem við höfum í launaumslaginu í dag myndi þá rýrna að sama skapi. Það er óréttlátt að láta almenning borga brúsann með því móti. Afskriftirnar þarf því að nota til að þurrka út skuldir ríkissjóðs. Um þetta þarf pólitíska sátt."
Áhrínsorð Þorsteins eru þessi: "Ný framtíðarstefna ríkisstjórnarinnar í peningamálum verður að tryggja þann stöðugleika að Seðlabankinn geti með ákvörðunum um stýrivexti stuðlað að því að lántökukostnaður í íslenskum krónum verði ekki hærri en í samkeppnislöndunum. Verði þetta aftur á móti ekki hluti af nýrri tilveru eftir afnám hafta á þessum vordögum er það merki um að ríkisstjórninni hafi mistekist að sýna fram á að krónan tryggi hagsmuni Íslendinga best. Það væri mikið pólitískt áfall. Í raun mætti nota orð eins og skipbrot í ljósi þeirra stóru orða um ágæti krónunnar sem ríkisstjórnin hefur notað," og hann klikkir út með þessum orðum: "Vonandi þarf hún ekki, þegar sumarið gengur í garð, að naga sig í handarbökin fyrir að hafa hafnað þeirri áskorun síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins að skoða aðra kosti í gjaldmiðilsmálum.