Krónan: kostur fárra á kostnað flestra

Krónan er kostur útvalinna fáu á Íslandi á meðan hún kostar allan almenning óheyrilegar upphæðir í heimilisbókhaldi og atvinnulífi að því er Ólafur Ágúst Ólafsson, þingmaður Samfylkingarinnar hélt fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun.

Þar sagði hann að gengisbreytingar krónunnar gerðu ekki annað en að færa fé frá fjöldanum til fárra, en tilefni umræðunnar voru þær miklu sveiflur á gengi krónunnar sem reynt hafa á efnahag landsmanna á síðustu árum. Ágúst sagði mikla styrkingu krónunnar nú um stundir gera fyrirtækjum erfitt fyrir og draga úr möguleikum til kauphækkana.
 
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra var til andsvara og kvað hann fleira hafa áhrif á lífskjör almennings en stöðugleika gjaldmiðilsins. Raunin væri sú að kaupmáttur hefði aukist mikið hérlendis.
 

\"Prósentubreyting á gjaldmiðlinum getur haft mun meira að segja en prósentubreyting á launum,“ sagði Ágúst Ólafur og vísaði til uppsagna hjá Odda nýlega. Þar var hátt í helmingi starfsfólks sagt upp og ákveðið að flytja inn umbúðir erlendis frá frekar en að framleiða þær hérlendis.

Ágúst Ólafur sagði að stjórnendur innflutningsfyrirtækja gætu þurft að eyða mun meiri tíma í gjaldmiðilsmál en gæðamál. Gengisbreyting krónunnar gerði ekki annað en að færa fé frá þorra fólks til fárra fyrirtækja - og það skilaði engu nema meiri verðbólgu og lakari kjörum launafólks.