\"Í meir en sex ár hafa trúuðustu andstæðingar frekari Evrópusamvinnu haldið því fram að evran myndi hrynja á morgun. Þrátt fyrir skrif af þessu tagi dag eftir dag, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár er evran enn önnur öflugasta og stöðugasta myntin í heiminum.\"
Þetta skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is í tilefni af þeim orðum Evrópusambandsandstæðinga að ófarir Grikkja grafi undan stoðum Evrópuamvinnu. Þorsteinn kemst að þveröfugri niðurstöðu, en skrifar einnig um þróun evru og krónu og segir þar ESB-andstæðinga hafa heldur breytt málflutningi sínum á síðustu misserum:
\"Mesta breytingin er sú að þeir sem harðast vilja halda í krónuna, hvað sem það kostar, eru hættir að halda því fram að unnt verði að bjóða hana á sambærilegum vöxtum og samkeppnislöndin njóta. Þrátt fyrir allan vandann í Grikklandi borga heimilin þar 2 til 3% í vexti af húsnæðislánum meðan íslenskar fjölskyldur borga 5 til 7% hærri vexti,\" skrifar þessi fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra hans til fjölmargra ára.
\"Ætla má að íslensk fyrirtæki og heimili greiði tvöhundruð til þrjúhundruð milljarða króna í umfram vexti miðað við evru á hverju ári. Hvað sem líður vanda Grikkja verður ekki komist hjá því að taka á þessum íslenska vanda ætli menn að styrkja samkeppnisstöðu landsins og bæta raunverulegan kaupmátt,\" skrifar hann einnig í þessum pistli og bendir á: \"Grikkland hefur ekki breytt veikleika krónunnar.\"
Hann minnir jafnframt á samstöðu allra þingflokka um ríkisfjármálin: \"Evran kallar eðlilega á samræmdar reglur um fjárlagastefnu. Svo vill til að í kjölfar hrunsins lagði Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn til að hafist yrði handa um að semja nýja löggjöf um ríkisfjármálin með nokkurn veginn sömu kröfum og bandalagið um evruna kallar á. Vinstri stjórnin hóf þetta verk. Núverandi stjórn hélt því áfram og lagði málið fram á Alþingi. Um það er samstaða milli allra flokka.\"
Í þessu ljósi segir Þorsteinn að svolítið erfitt sé að halda því fram með rökum að fullveldi Íslands sé ógnað af myntsamstarfi sem byggi á ríkisfjármálastefnu sem eining er um á Alþingi. Grikkland hafi alltént engu breytt í þeim efnum. Og niðurstaða hans er skýr: \"Að öllu þessu virtu er ljóst að Evrópuhugsjónin er ekki hrunin. Sambandið hefur staðist mikla áraun. Og Grikklandsmálið hefur ekki fært þeim nein rök sem berjast gegn því sem allir flokkar lofuðu fyrir síðustu kosningar: Að þjóðin fengi sjálf að ákveða hvort aðildarviðræðum verði haldið áfram eða ekki.\"
Pistilinn má lesa í heild sinni hér til hliðar á forsíðunni.