Athafnamaðurinn Thomas Möller, sem er fastur pistlahöfundur á Hringbraut, segir í nýjustu skrifum sínum að Ísland minni hann um margt á gamla morknaða kerfið sem hann kynntist í Austur-Þýskalandi forðum daga.
Hann hafi kynnst á námsárum sínum í Vestur-Berlín stéttaskiptingunni í Austur-Þýskalandi þar sem fólk glápti á vörurnar í Intershop-búðunum sem voru víða í landinu. Þar hafi verið hægt að kaupa vestrænar vörur, svo sem kaffi, sælgæti, vín og ávexti \"og aðeins hægt að greiða fyrir með alvöru gjaldmiðlum og alls ekki með austurþýska markinu,\" eins og Thomas rifjar upp.
Líkindin með Austur-Þýskalandi og Íslandi séu nefnilega nærtæk: \"Í Intershop gátu aðeins þeir verslað sem höfðu tengsl eða viðskipti við „vestrið“ eða voru ofarlega í metorðastiga kommúnistaflokksins – hástéttin í landinu. Almenningur þurfti að láta sér nægja gervikaffi, kakólaust súkkulaði og banana kannski einu sinni á ári.\"
Staðan sé nú hin sama á Íslandi: Hér á landi séu til gjaldeyrisskapandi fyrirtæki sem geti fjármagnað sig eingöngu erlendis með um 1% vöxtum. Hin fyrirtækin þurfi að notast við fjármögnun í íslenskum krónum með vöxtum á bilinu 6% til 12%: \"Það getur ekki verið ásættanlegt að búa til svona stéttaskiptingu í landinu sem þar að auki raskar samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendri samkeppni,\" skrifar Thomas.
Hann nefnir sem dæmi að Costco, sem er á leiðinni til landsins, geti fjármagnað sínar fjárfestingar og vörubirgðir á 1% lánum eða minna meðan Hagkaup, Samkaup, Bónus og Krónan þurfi að fjármagna sína uppbyggingu og samkeppni gegn Costco á margföldum vöxtum.
Staðreyndin sé þessi: \"Nýjustu rannsóknir sýna að íslenska krónan (þessi sterka og stöðuga!) kostar þjóðarbúið og heimilin í landinu yfir 200 milljarða króna á ári í aukakostnað. Íslensk heimili þurfa að greiða um sjöfalda vexti af lánum sínum miðað við nágrannalöndin sem hefur leitt til þess að vextir eru orðnir stærsti kostnaðarliður heimilanna, á undan matvöru. Slíkt þekkist ekki í nágrannalöndum okkar,\" skrifar Thomas og spyr að endingu: \"Er ekki kominn tími á að loka Intershop á Íslandi og taka upp nýjan samkeppnishæfan gjaldmiðil?\"