„Enn og aftur heyrum við fréttir um fyrirtæki sem heyja erfiða rekstrarbaráttu og undantekningarlaust er bent á orsakavaldinn, styrkingu krónunnar. Óvissan innan ferðaþjónustunnar er mikil, bændur standa í kunnuglegri baráttu og litlar fiskvinnslur sem og nýsköpunarfyrirtæki eiga erfitt með fótfestu í þessu sveiflukennda umhverfi.
Þessa sögu þekkjum við öll og höfum lifað með henni. Óvissuna sem fylgir krónunni má hins vegar sjaldan ræða nema út frá þeirri forsendu einni að við Íslendingar verðum að viðhalda núverandi gjaldmiðli. Það sé okkar eini kostur. Að betra sé að stagbæta okkar örgjaldmiðil í stað þess að horfast í augu við þann gríðarlega kostnað og áhættu sem sveiflukennd krónan er fyrir heimili, launþega og fyrirtækin í landinu. En sveiflur krónunnar, ólíkt þeirri skagfirsku, eru enginn gleðigjafi. Íslenskt atvinnulíf sem og heimili eru berskjaldaðri en aðrar þjóðir með stöðuga mynt. Ef einhver alvara er í því að vinna að langtímastöðugleika er þetta atriði sem aðilar vinnumarkaðarins ættu að koma sér saman um því hugrekkið í gjaldmiðilsmálum er ekki að finna við ríkisstjórnarborðið.“
Nánar á