Íslenska krónan fellur vanalega á tíu ára fresti, ýmist af mannavöldum eða af utanaðkomandi ástæðum. Þetta fullyrðir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, á fundi sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi stóðu að í gær um krónuna.
\"Þetta er í raun hamfarasaga og ekkert annað en afleiðing slakrar hagstjórnar,“ sagði Ásdís á fundinum, en ítarleg samantekt um efni fundarinnar og erindi Ásdísar er að finna í skrifum Jóns Hákons Halldórssonar á Markaðnum í dag. Þar segor að hún hafi á fundinum lýst yfir sérstökum áhyggjum af stöðu vinnumarkaðarins: \"Hér er verið að semja um launahækkanir langt umfram getu hagkerfisins, langt umfram þá verðmætasköpun sem á sér stað,“ sagði Ásdís og bætti við að svigrúm til launahækkana ylti á framleiðniaukningu í íslensku atvinnulífi. Mesti vandinn væri fólginn í því að undanfarin ár hefði framleiðni á Íslandi aukist lítið sem ekkert og mun minna en fyrir hrun.
Og hún hélt áfram: \"Það einskorðast þó ekki aðeins við Ísland, heldur glíma önnur iðnríki jafnframt við litla framleiðniaukningu,“ sagði Ásdís og taldi ástæðuna meðal annars vera þá að hagvöxtur væri drifinn áfram af vinnuaflsfrekum þjónustugreinum eins og ferðaþjónustu. Hún sagði jafnframt að undanfarin misseri hefði ríkt hér á Íslandi sjaldséður stöðugleiki. Verðbólga væri við markmið Seðlabankans, atvinnuleysi lítið, afgangur af viðskiptum við útlönd auk þess sem ríkissjóður væri farinn að skila afgangi á ný. Það væri því vert að velta fyrir sér hvað væri fram undan og hvort einhverjar hættur séu í veginum.
\"Við óttumst það að við séum á góðri leið með að glata stöðugleikanum“ segir Ásdís. Umsamdar launahækkanir ógna verðstöðugleikanum og nú þegar sjáum við merki þess efnis í innlendu verðlagi. Seðlabankinn hefur hækkað vexti og boðar frekari vaxtahækkanir. Við upplifum skammtíma kaupmáttaraukningu samhliða því sem gengisstyrkingin heldur verðbólgunni niðri. Á endanum mun þessi þróun hins vegar grafa undan samkeppnisstöðu þjóðarbúsins,“ sagði Ásdís á fundinum, en sem fyrr segir er hér vitnað til samantektar á erindi hennar sem birtist í Markaðnum í dag.
Saga krónunnar er hamfarasaga
Fleiri fréttir
Nýjast