„krónan býr til agaleysi“

Heiðar Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir sagði á umræðufundi sem Ungir Fjárfestar og Íslandsbanki héldu á föstudag að „við kæmum aldrei aga á útgjöld hins opinbera nema taka af [ríkinu] seðlaprentvélarnar,“ sem hann sagði búa til agaleysi. Átti hann þar við upptöku erlendrar myntar, sem hið opinbera hefði þar með ekki prentunarvald á, eins og það hefur í dag með íslensku krónuna.

Hann sagði prentunarvaldið búa til of miklar freistingar fyrir hið opinbera. „vegna þess að það er svo freistandi fyrir þá að bjarga einhverjum bönkum, að bjarga einhverjum byggðarlögum, að bjarga einhverjum sveitarfélögum sem eru búin að rasa um ráð fram, þannig að þetta býr til agaleysi.“

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/kronan-byr-til-agaleysi/148796/