Króna er of sterk

Greiningardeild Arion banka fjallar um þetta sem sérefni dagsins á vef deildarinnar. Að mati deildarinnar eru allar líkur á því að krónan sé orðin sterkari en hagkerfið ræður við til lengdra.

Fyrir því telur Greiningardeild Arion banka vera fimm ástæður: Ísland er að líkindum dýrasta land í heimi; Laun á Íslandi eru með því allra hæsta sem gerist; Afkoma í útflutningsgreinum fer hratt versnandi; Talsverður skammtíma meðbyr var með krónunni síðustu mánuði; Krónan er líklega komin yfir jafnvægis raungengi.

Er króna þá að fara að veikjast. Nei líklega ekki mikið á næstunni. Þvert á móti telur Greinignardeildin að til skemmri tíma litið sé hófleg styrking líklegri.

Líkur á miklu gengisfalli eru einnig litlar. Greiningardeildin segir að orða megi þetta svo að líkurnar á því að krónan verði veikari eftir fimm ár eru meiri en líkurnar á því að krónan verði sterkari.

rtá

Nánar www.arionbanki.is