Kröfur pírata eru ófrávíkjanlegar

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður pírata segir pírata setja á oddinn í stjórnarmyndunarviðræðum eftir kosningar stjórnarskrá og þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB.

Píratar vilji lögfesta tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá og þeir vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu.

Helgi Hrafn segir þessar tillögur pírata ófrávíkjanlegar komi til þess þeir taki þátt í viðræðum um nýja ríkisstjórn að afloknum næstu alþingiskosningum.

Þetta kom fram í samtali Helga Hrafns við Ólafana í nýliðinni viku, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar. Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar þar sem hagfræðingarnir greina þjóðmálin á sinn afdráttarlausa hátt.