Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfur Arnarlax, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar og vísað frá kröfum fyrirtækjanna Akurholts og Geiteyrar um að starfs- og rekstrarleyfi Arnarlax í Arnarfirði yrðu ógilt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Arnarlax.
Akurholt og Geiteyri eru veiðiréttarhafar í Haffjarðará. „Í niðurstöðu héraðsdóms kom fram að kröfur veiðiréttarhafanna miðuðu að því að fá dóm sem legði bann við að laxeldi í sjókvíum væri stundað á Íslandi. Vísaði dómurinn til þess að löggjafinn og stjórnvöld hefðu um áratugaskeið tekið með í reikninginn áhrif fiskeldis á náttúrulega laxastofna í veiðiám á Íslandi, við ákvarðanatöku um hvort og á hvern hátt og í hversu miklum mæli fiskeldi skyldi heimilað,“ segir Kristín Edwald, hæstaréttarlögmaður, sem flutti málið fyrir hönd Arnarlax.
Í dóminum kemur einnig fram að óumdeilt væri að staðbundin umhverfisáhrif starfsemi Arnarlax næðu ekki til þess hafsvæðis þar sem Haffjarðará rennur til sjávar. Niðurstaðan sé því sú að Akurholt og Geiteyri hafi ekki orðið fyrir tjóni af starfsemi Arnarlax. Veiðirétthafarnir hafi ekki sýnt fram á að starfsemin skapaði hagsmunum þeirra sérstaka hættu og hafi því ekki lögvarða hagsmuni af að fá dóm um kröfur sínar.