Kröftug þögn emmu í washington í dag

Það var kröftug 6 mínútna og 20 sekúndna ræða sem Emma Gonzales hélt í fjöldagöngunni March for Our Lives í Washington í dag og jafnvel enn kröftugri þögn hennar til að undirstrika hversu stuttan tíma það tók morðingjann í framhaldsskólanum í Parkland í Florida að murka lífið úr samnemendum hennar og starfsliði skólans með hríðskotariffli í febrúar.

Tárin láku niður kinnar Emmu Gonzales, sem er orðinn einn helsti talsmaður breyttrar vopnalöggjafar í Bandaríkjunum.

Sjáið magnað myndband af ræðu Emmu á útfundinum í dag sem hundruð þúsunda sóttu, eins og aðra fundi til stuðnings málstaðnum í borgum og bæjum vítt og breitt um Bandaríkin í dag og víða um veröld, þar á meðal hér á landi.