Króatar loka sínum landamærum

Króatísk yfirvöld hafa lokað aðgangi á sjö af átta leiðum frá Serbíu yfir landamærin eftir að flóttamannastraumurinn beindist nær allur þangað í kjölfar lokunar Ungverja á sínum landamærum.
 

Yfir 11 þúsund flóttamenn hafa komið til Króatíu frá því snemma á miðvikudag, en Zoran Milanovic, forsætisráðherra, hafði varað við því að landið gæti ekki tekið á móti mörgum í einu. Því var gripið til þess ráðs í kvöld að loka sjö af átta inngönguleiðum um landamærin.

Yfirvöld í Slóveníu sneru í gærkvöld lest með um 150 flóttamönnum innanborðs aftur til Zagreb, höfuðborgar Króatíu. Sögðu yfirvöld að flóttamennirnir væru ekki með tilheyrandi pappíra til þess að komast inn í landið. Lestarsamgöngum á milli landanna var í kjölfarið frestað þar til í fyrramálið.