Kristrún reið og segist ekki til rannsóknar - Sökuð um Trumpisma

Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, sakar Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um að gera lítið úr henni sem jafnaðarmanni með því að fjalla um kauprétt sem hún nýtti sér á hlutabréfum í Kviku banka.

Greint var frá því í gær að skattayfirvöld hefðu skoðað skattskil hjá Kviku banka þar sem Kristrún var aðalhagfræðingur frá því 2018. Þá talaði Morgunblaðið um að Kristrún hafi gengið út úr Kviku með „tugi milljóna í vasanum“.

Kristrún birtir harðorða yfirlýsingu á Facebook og segir:

„Ég fékk ekki 1 kr. í kaupaukagreiðslu frá Kviku og borgaði fyrir mína eigin fjárfestingu í félaginu takk fyrir mig. Fjárfesting sem kom vel út, eins og margar fjárfestingar á hlutabréfamarkaði undanfarin ár. Síðast þegar ég vissi mega fleiri en Sjálfstæðismenn taka þátt á hlutabréfamarkaði.“

Hún segist ekki til rannsóknar: „Mín kaup eru ekki til rannsóknar, þessi fjárfesting, né ég. Þetta hefur nákvæmlega ekkert með mig að gera. Ég hef borgað mína skatta af þessari fjárfestingu sem ég borgaði fyrir og er í raun ekki í stöðu til að ákvarða hversu mikla skatta ég greiði af því.“

Kristrún segir svo: „Þetta er algjör lágkúra í fjölmiðlun, og ástæðan fyrir því að margt ungt fólk veigrar sér við pólitískri þátttöku. Svona fréttamennska er bara til þess fallin að kúga fólk frá lýðræðislegri þátttöku. Ég ætla ekki að leggjast flöt fyrir þessu, þið getið gleymt því. Þetta styrkir mig og okkur í Samfylkingunni bara í þeirri trú að við séum á réttri braut.“

Viðskiptablaðið segir í frétt sinni um málið í dag:

„Rétt er að geta þess að Viðskiptablaðið hefur frá síðastliðnum miðvikudegi reynt að ná á Kristrúnu Frostadóttur, bæði með símtölum og með smáskilaboðum. Engin svör hafa borist fyrr en nú þegar Kristrún tjáir sig um málið á Twitter.“

Nokkrir hafa komið Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu til varnar, þar á meðal Rafn nokkur sem sakar Kristrúnu um Trumpisma: