Krist­rún les Bjarn­a pist­il­inn: „Er við­kom­and­i hæf­ur í starf­i sem fjár­mál­a­ráð­herr­a“

Krist­rún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar, skýtur föstum skotum á Bjarna Bene­dikts­son og gagn­rýnir um­mæli sem hann lét falla í við­tali við Kristján Kristjáns­son á Sprengi­sandi þar sem fjár­mála­ráð­herra varði söluna á hluta­bréfum í Ís­lands­banka.

„Mikið væri það nú gott ef fjár­mála­ráð­herra hefði á­huga á að mæta í við­töl með öðrum, þar sem hann getur ekki bara keyrt yfir hlutina og talað um að allir séu alltaf á háa C-inu. Sé ekki betur en að fjár­mála­ráð­herra sé sjálfur á háa C-inu í þessu við­tali í morgun,“ skrifar Krist­rún í færslu á Face­book þar sem hún merkir Katrínu Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra og kallar eftir við­brögðum.

Bjarni birti sjálfur færslu á Face­book í kvöld þar sem hann segir rök­semda­færslu stjórnar­and­stöðunnar undan­farna daga vera komna í hring.

„Það er mikil­vægt að öflug um­ræða fari fram um sölu hluta í Ís­lands­banka, rétt eins og önnur þjóð­þrifa­mál. Öllu verra er þegar mestur tíminn fer í að leið­rétta rang­færslur og gífur­yrði stjórnar­and­stöðunnar – sem oftar en ekki eru flutt gagn­rýnis­laust af ýmsum miðlum,“ skrifar hann.

Krist­rún tekur til tíu at­huga­semdir þar sem hún gagn­rýnir mál­flutning fjár­mála­ráð­herra og sakar hann meðal annars um að drepa málinu á dreif og fría sig á­byrgð af hneykslinu.

„Það er ekki hægt að klappa sér á bakið fyrir það eitt að ná að selja 50 milljarða króna eign. Það er hægt að selja svona eign fyrir gott verð án þess að skandalar fylgi,“ segir Krist­rún.

Að hennar sögn var aug­ljóst af út­boðinu að það var næg eftir­spurn og gagn­rýni fólks á það snúi að því hvernig salan fór fram. Fjár­mála­ráð­herra hélt því fram á Sprengi­sandi að skoða þyrfti málið af sann­girni og að salan hefði tekist vel.

„Að benda á loka­verð­miðann er leið til að drepa málinu á dreif. Fjár­mála­ráð­herra getur ekki varið sig með því að segja að verðið hafi verið fínt og þá skipti engu máli þó mögu­leg spilling sé til staðar. Þegar þú byrjar að færa línuna svona, hvað er í lagi og hvað ekki, út frá heildar­tölunni ertu kominn á mjög hættu­legan stað. Það að ráð­herra í ríkis­stjórn Ís­lands orði hlutina með þessum hætti er mjög al­var­legt,“ skrifar Krist­rún.

Pistil Krist­rúnar má lesa í heild sinni á Face­book-síðu hennar.