Kristrún hjólar í Ásgeir: „Þú hlýtur að vera að grínast“

Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur og einn oddvita Samfylkingarinnar, segir að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hljóti að vera að grínast þegar hann segir að stefna Reykjavíkurborgar hafi haft áhrif til hækkunar á fasteignaverði.

Ásgeir sagði við Markaðinn í dag að lækkun veðsetningarhlutfallsins dragi úr þörfinni á því að hækka vexti. Hins vegar hefði verið hægt að komast hjá því að lækka hlutfallið ef betur hefði verið staðið að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

„Það liggur alveg fyrir, sama hvernig menn snúa því fram og til baka, að sú ákvörðun Reykjavíkurborgar að brjóta ekki nýtt land undir ný hverfi, hefur áhrif á fasteignaverð í allri borginni. En vitaskuld er nægjanlegt rými fyrir nýtt húsnæði til staðar á þéttingarreitum innan borgarinnar – það bara tekur lengri tíma að koma þeim í gagnið. Við gætum horft fram á eitt eða tvö ár þar sem heldur hægir á framboði af nýjum eignum,“ sagði Ásgeir.

Kristrún er ekki sátt: „Þú hlýtur að vera að grínast,“ segir hún í færslu á Facebook. „Það er eitt að lækka vexti. Annað að ýta undir mörg hundruð milljarða útlán til heimila í sértækri atvinnukreppu. Þegar ég vakti athygli á þessu í nóvember var gagnrýninni ýtt til hliðar. Nú er skipulagsmálum kennt um skammtímahreyfingar á fasteignamarkaði. Í stað þess að ráðast snemma í sértækar aðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki í tekjustoppi var ákveðið að pumpa upp kerfið með aukinni skuldsetningu allra.“

Hún segir þetta kredduhugsun:

„Þetta er klassískt dæmi um hvernig óbeinar efnahagsaðgerðir geta brenglað allt kerfið. Afleiðing 1) kredduhugsunar um að ríkið eigi bara að koma inn þegar allt annað hefur verið reynt og 2) afstöðunnar að aðgerðir Seðlabanka (sem snúa ekki bara að vaxtabreytingum) geti ekki haft pólitískar afleiðingar – þrátt fyrir að þær geti haft mikil áhrif á eignamarkaði og þannig tekjuskiptingu.“