Kristjón kormákur ráðinn til hringbrautar

Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur verið ráðinn ritstjóri Hringbrautar.is. Kristjón lét nýverið af störfum sem aðalritstjóri DV. Kristjón hóf störf hjá Vefpressunni árið 2012. Tveimur árum síðar var hann ráðinn ritstjóri Pressunnar, sem rak þá vefina DV.is, Pressan.is, Eyjan.is og Bleikt.is. 

Kristjón var annar tveggja ritstjóra DV árið 2016 en var síðan ráðinn aðalritstjóri í desember árið 2017. Kristjón Kormákur hefur sagt upp störfum á DV og mun stýra vef Hringbrautar en Sigmundur Ernir Rúnarsson verður sjónvarpsstjóri. Kristjón segir: 

„Framundan eru spennandi tímar og ég hlakka til að takast á við þessa áskorun. Á Hringbraut eru fagmenn í hverju rúmi og ég hlakka til að vinna með þessum reyndu fjölmiðlamönnum. Hringbraut mun halda áfram að vaxa og dafna og fyrir hendi eru mörg tækifæri til að styrkja okkur á öllum vígstöðvum.“  

Útgefandi Hringbrautar er Guðmundur Örn Jóhannsson.