Nú er þess víða minnst að liðin er öld frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Þá var stofnað konungsríkið Ísland og Kristján X. varð þar með konungur í nýju sjálfstæðu konungsríki. Dr. Magnús K. Hannesson, starfsmaður utanríkisþjónustunnar, hefur rannsakað konungsríkið Ísland og vinnur nú að bók um það. Hann fjallar í viðtali í þættinum 21 í kvöld um konungsríkið vítt og breytt, en þar kemur margt forvitnilegt fram, eins og til að mynda að Kristján konungur las sjálfur íslensku. Björn Jón Bragason fær Magnús til sín í betri stofuna.
Kristján x konungur las íslensku
Fleiri fréttir
Nýjast