Kristján Þór Júlísson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun að honum þætti ekkert við embættisfærslur hans að athuga og þess vegna sæi hann enga ástæðu til að víkja úr embætti. Hann hefur sagt sig frá fjórum málum sem tengjast Samherja. Frá þessu er sagt á vef DV.
Í útvarpsþættinum sagðist hann hafa gert það þó að ráðgjafar sem hann hafi leitað til hafi sagt að hann væri enn hæfur til að taka ákvarðanir um þau.
„Þá vildi ég engu að síður leyfa þessum málum að njóta vafans,“ sagði hann.
Hann sagði að það hafi aftur á móti verið sjálfsagt að segja sig frá málunum til að skapa traust en engar aðrar ástæður lægju þar að baki. Hann sagði að ekkert nýtt hafa komið upp varðandi hagsmunatengsl hans gagnvart Samherja.
Eðli stjórnmála að veikja stjórnarsamstarf
Varðandi gagnrýni stjórnarandstöðunnar segir hann að hún sé bara pólitísk:
„Enda gerir formaður andstöðu stjórnmálaflokks mat úr öllu því sem hann telur geta veikt þetta stjórnarsamstarf. Það er bara eðli stjórnmála á Íslandi og raunar víðar. Og ekkert við það að athuga. Þetta er bara lenska að reyna að reka fleyg á milli flokka.“
Hann sér ekki ástæðu til þess að segja af sér þar sem hann hafi unnið af heilindum og það hafi alla tíð legið uppi á borðum að hann hafi unnið fyrir Samherja á árum áður.