Kristján þór: „núgildandi fyrirkomulag við úthlutun tollkvóta bæði óeðlilegt og ósanngjarnt“

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um úthlutun tollkvóta á matvöru. Markmið frumvarpsins er að koma ávinningnum sem skapast með úthlutun tollkvóta í meira mæli til neytenda í formi lægra vöruverðs. Þá verður ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara lögð niður frá 1. janúar næstkomandi. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að nefndinni hafi reynst erfitt, raunar ómögulegt, að sannreyna hvenær framboð vöru telst ekki nægjanlegt á innanlandsmarkmiði.

Frumvarpið byggir á tillögum starfshóps sem skilaði tillögum sínum í janúar síðastliðinn. en í honum áttu sæti fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Samtaka atvinnulífsins, Neytendasamtakanna auk fulltrúa ráðuneytisins.

Eftirspurn eftir tollkvótum hefur aukist mikið á síðastliðnum árum og hafa innflytjendur á matvælum og verslanir kvartað mikið yfir því að ekki séu til ákveðin matvæli í landinu þar sem engir tollkvótar eru til fyrir innflutning. Gildandi regluverk við úthlutun á tollkvótum er með þeim hætti að tollkvótarnir eru boðnir út og þeim úthlutað til hæstbjóðenda. Þessi gjaldtaka hefur skapað ríkinu nokkrar tekjur en á sama tíma hefur fyrirkomulagið leitt til hærra vöruverðs fyrir neytendur, þvert á tilgang þess sem að baki tollasamning Íslands og Evrópusambandsins árið 2015 liggur.

Ráðuneytið segir að markmiðið með skipan starfshópsins í fyrra var að finna leiðir til þess að koma ávinningnum sem skapast með þessum takmörkuðu gæðum sem tollkvótar eru í meira mæli til neytenda í formi lægra vöruverðs. Með samþykkt frumvarpsins verður núgildandi úthlutunaraðferð tollkvóta breytt með þeim hætti að stuðst verður við svokallað jafnvægisútboð. Í því felst að lægsta samþykkta tilboð útboðs ákvarðar verð allra samþykktra tilboða, það er að allir sem fá úthlutað tollkvóta greiða það verð sem lægsta samþykka tilboð hljóðaði upp á. Þannig er gróflega áætlað að með breytingunni muni tekjur ríkissjóðs vegna útboða á tollkvótum lækka um 240-590 milljónir króna á ári. Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er unnið að því að koma á fót samstarfsverkefni um eftirlit á markaði til að tryggja að lækkaðar álögur á vörur skili sér í lægra verði til neytenda.

„Ég hef talið núgildandi fyrirkomulag við úthlutun tollkvóta bæði óeðlilegt og ósanngjarnt, sérstaklega fyrir hagsmuni neytenda. Því er samþykkt Alþingis á þessu frumvarpi sérstakt fagnaðarefni enda má gera ráð fyrir að kostnaður vegna útboða lækki talsvert. Þá verður allt regluverk um úthlutun tollkvóta sanngjarnara og einfaldara til hagsbóta fyrir neytendur, framleiðendur og innflytjendur matvæla,“