Mikill hiti er víða í samfélaginu vegna þeirrar ákvörðunar heilbrigðisráðherra að hyggjast einkavæða þrjár nýjar heilsugösustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Talsmenn stjórnarandstöðu hafa fordæmt slíkt skref án þess að póltiísk umræða fari fram um stefnubreytingu frá ríkisrekinni þjónustu. Sjálfur neitar Kristján Þór Júlíusson því að um einkavæðingu sé að ræða, enda verðir ekki tekinn út arður.
Álitsgjafar Íslands hafa hvergi sparað sig. Sumir þeirra leggja í skrifum út frá þeim ummælum Kristjáns Þórs að fyrirmyndin sé sænsk. Hefur verið bent á að nú standi til að flytja sænsk mistök inn til Íslands. Sænska einkavæðingin í heilsugæslu hafi brugðist eins og Ríkisendurskoðun Svía segii vonir hafa brugðist.
Um þetta skrifar Jónas Kristjánsson, fv. ritstjóri, og vitnar til þessarar úttektar í bloggpistli.
\"Á sama tíma er Ísland að detta inn í sama vítahring. Við höfum fengið frá Svíþjóð landlækni, sem tók þátt í einkavæðingunni. Honum virðist vera fákunnugt um nýjustu skýrslur. Einkavæðingin þar jók stéttamismun. Þeir, sem geta borgað, fá betri þjónustu, en hinir verri. Í andstöðu við norræna velferðarstefnu. Við eigum að læra af mistökum annarra. Þess vegna verður ljúft að vinda ofan af tilraun gróðafíkla til að koma upp svipaðri gróðafroðu hér á landi. Kannanir sýna, að þorri Íslendinga styður ríkisrekstur heilsugæzlunnar,\" skrifar Jónas Kristjánsson í bloggpistli.