Kristján þiggur launahækkunina

Kristján Loftsson stjórnarformaður HB Granda kveðst virða þá ákvörðun Rannveigar Rist, eins stjórnarmanna útgerðarfyristækisins að þiggja ekki margfræga 33% launahækkun til handa stjórn þess sem ákveðin var á dögunum. Hún hafi engin áhrif á samvinnu þeirra.  Ekki enn er vitað hvort aðrir almennir stjórnarmenn HB Granda ætla að fara að ráði Rannveigar.


Rannveig hefur sagt launahækkun stjórnarmanna HB Granda vera úr takti við stöðu kjaramála á Íslandi, en sjálf stjórnar hún mörgundruð manna álfyrirtæki í Straumsvík.


Sjálfur kveðst Kristján í samtali við Morgunblaðið í morgun ekki ætla að fara að dæmi Rannveigar; hann muni þiggja launahækkuna, en stjórnarlaun hans hækka þar með úr 300 þúsundum króna á mánuði í 400 þúsund. Almennnir stjórnarmenn, nema Rannveig, hækka væntanlega allir úr 150 þúsundum króna á mánuði í 200 þúsund. Almennir stjórnarmenn HB Granda, fyrir utan Rannveigu, eru Hanna Teitsdóttir, Halldór Teitsson og Þórður Sverrisson, en sá síðastnefndi er forstjóri Nýherja.