Kristján: „þetta eru mjög hrikalegar árásir og mjög hrottaleg morð“

„Ef það eru einhver ein allsherjar element í gangi þá er það brjálæði, eða einhvers konar geðveiki. Þetta eru mjög hrikalegar árásir og mjög hrottaleg morð. Það er ráðist inn í, ekki bara einkalíf fólks heldur inn á helgistaði líka. Við horfum svolítið á þetta með gleraugum kristinna manna en í raun og veru þurfum við að skoða þetta svolítið hlutlægt líka. Það er verið að ráðast inn í helgistað, sem varðar þá trúartilfinningu og lífsskoðun. Þetta er svo margbrotin innrás og hefur svo altæk áhrif á bæði á það samfélag og alla sem tengjast því á einhvern hátt.“

Þetta segir Kristján Björnsson vígslubiskup í viðtali við Björn Jón Bragason í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hann um árásir sem beinast að kristnum, til að mynda hryðjuverkaárásina í Sri Lanka á dögunum.

„Yfirleitt eru átök þar sem ein trúarhreyfing er í meirihluta eða einhver mjög aggressív trúarhreyfing er í minnihluta. En þessar árásir eins og í Sri Lanka eru ekki árásir frá einu trúfélagi til annars. Það verður að skoða þetta sem hryðjuverkaárás og við þurfum að reyna að einangra þetta á það plan, vegna þess að þetta er svo mikið brjálæði að fara að taka líf annarra og ráðast inn í helgidóminn til þess líka,“ bætir hann við.

Nánar er rætt við Kristján í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.