Uppbygging Landspítalans verður við Hringbraut. Ekki þarf lengur að þrátta um staðsetningu spítalans, enda liggur ákvörðunin fyrir skrifa þeirr Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans í sameiginlegri grein í Fréttablaðinu í dag.
Fátítt er að pólitískir andstæðingar á borð við Kristján og Dag stingi sameigjnlega niður penna.
Grein þeirra er skrifuð í tilefni langvarandi þræta um staðsetningu spítalans, en fyrr í vikunnu urðu þau tímamót að sérfræðihópur á vegum KPMG komst að þeirri niðurstöðu, eftir mikla rannsókn, að spítalanum væri best komið á sínum samstað.
Gagnrýnendur þeirrar staðsetningar hafa helst bent á að aðkomuleiðir að spítalanum séu erfiðar og mikil umferð um þær, spítalinn sé langt því frá á miðju höfuðborgarsvæðisins og að ekki verði pláss fyrir frekari uppbyggingu eða stækkun á lóð spítalans að lokinni þeirri uppbyggingu sem nú er stefnt að.
Á þessar röksemdir blása þremenningarnar í grein sinni og vísa í þeim efnum í nýja skýrslu KPMG um staðarvalið. Þar sé staðfest enn og aftur að uppbygging við Hringbraut hafi þá kosti sem vegi þyngst, hvort sem horft sé til fjárhagslegra eða faglegra þátta.
Í greininni segir að víðtæk samstaða sé um að endurnýja húsakost Landspítalans: \"Vilji Alþingis er skýr og hefur verið staðfestur með lögum. Stefna borgarstjórnar liggur fyrir í samþykktu skipulagi. Kyrrstaðan hefur verið rofin, tími uppbyggingar er runninn upp. Uppbygging Landspítalans verður við Hringbraut,\" skrifa Kristján, Dagur og Páll.
Þá segir að mikil vinna hafi verið lögð í að finna þann stað sem best henti uppbyggingu og rekstri til framtíðar. Einkum hafi verið litið til þriggja þátt, góðs aðgengis, hagkvæmni í uppbygingu og samstarfs við aðrar mikilvægar stofnanir í nágrenninu. Aðkomuleiðir að Hringbrautarlóðinni hafi reynst bestir af þeim kostum sem skoðaðir hafi verið, aðgengi sjúklinga verði gott, sem og starfsmanna. Þá felist mikil hagkvæmni í uppbyggingu við Hringbraut í ljósi þess að stærstur hluti húsakostsins sem þar er fyrir nýtist áfram. Alls eru það um 56.000 fermetrar og þyngst vegur nýlegt og velbúið húsnæði barnaspítala Hringsins. Þá sé spítalinn í nánu samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og líftæknifyrirtæki sem nú séu að byggjast upp í nágrenni hans. Því skipti nálægðin við þekkingarsamfélagið í Vatnsmýri verulegu máli.
Þremenningarnir segja að ákvörðunin um framtíðaruppbyggingu Landspítalans sé stór og mikilvæg. Því hafi verið viðbúið að skoðanir yrðu skiptar: \"Niðurstaðan sem liggur fyrir er skýr og afdráttarlaus. Uppbygging við Hringbraut er skynsamleg og rétt niðurstaða. Þess vegna er mikilvægt að hefjast handa svo ljúka megi verkinu og endurbyggja þjóðarsjúkrahús Íslendinga sem fyrst.\"