Kristján loftsson kærður til lögreglu

Dýra-, náttúru- og umhverfisverndarsamtökin Jarðarvinir hafa kært Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf., og aðra forráðamenn fyrirtækisins til lögreglu vegna meints brots við hvalveiðar. Viðurlög við brotinu geta varðað allt að sex mánaða fangelsi.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Jarðarvinum.

„Í fyrra mun Hvalur hf. hafa veitt 144 langreyðar og 2 blendingja. Skv. skýrslu Háskóla Íslands frá í janúar sl., bls. 16, er söluverðmæti hverrar langreyðar 16,4 milljónir króna. Á þeim grundvelli, væri söluverðmæti aflans 2018, miðað við 144 dýr, nær 2,4 milljörðum króna,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir auk þess að kæran beinist í raun persónulega að forráðamönnum Hvals hf., stjórnarformanni og framkvæmdastjóra, þar sem möguleg saksókn og dómur gæti leitt til fangelsisdóms.

Veitt í óleyfi

Í bréfi frá Ragnari Aðalsteinssyni, lögmanni Jarðarvina, til lögreglustjórans á Vesturlandi segir meðal annars: „Nú hefur komið í ljós að svo virðist sem Hvalur hf. hafi á hluta síðasta veiðitímabils 2014 - 2018 stundað veiðar á langreyði án þess að hafa til þess tilskilið leyfi. Samkvæmt því sem óumdeilt er átti engin veiði á langreyði sér stað á árunum 2016 og 2017. Á því tímabili var í gildi veiðileyfi fyrir árinu 2014 – 2018. Hvalveiðiskipum var ekki haldið til langreyðaveiða á árunum 2016 og 2017 eða í tvö ár.“

Bent er á að veiðileyfi í atvinnuskyni falli niður hafi fiskiskipi ekki verið haldið til fiskveiða í atvinnuskyni í tólf mánuði. „Veiðileyfi það til hvalveiða til handa Hval hf. árin 2012 – 2018 féll því niður á síðasta leyfistímabili er Hvalur hf. hafði látið veiðar niður falla árin 2016 og 2017, þ.e. í meira en tólf mánuði. Þar sem nýtt leyfi til hvalveiða var ekki gefið út til Hvals hf. eftir veiðihléið 2016 – 2017 voru allar veiðar Hvals hf. eftir það ólöglegar og refsiverðar skv. 1. gr. og 10. gr. laga um hvalveiðar,“ segir einnig í bréfinu.