”Dagurinn er fallegur” segir Kristján Jóhannsson í upphafi þáttarins Grillspaðinn sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld kl. 21.45. Þar er hann gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar þáttastjórnanda sem fékk til sín Guðna Ágústsson í síðustu viku.
Kristján er vanur grillari í gegnum margra ára búsetu á Ítalíu og kvartar einna helst undan miklum mun á loftslagi og lái honum þar enginn. Engu að síður töfrar hann fram glæsilegar grillsteikur sem koma að norðan, hvað annað - og lagar með þeim gómsætt salat að hætti Ítala, sem merkir að gera það einfalt.
Missið ekki af skemmtilegum þætti á Hringbraut í kvöld sem verður endursýndur fram eftir nóttu og aftur á föstudagskvöld.