Kristján gunnar látinn laus

„Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Kristjáni Gunnari Valdimarssyni, lektor við Háskóla Íslands. Hann var handtekinn á jóladag og úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald, eða til 29. desember, grunaður um nauðgun, frelsissviptingu og fleiri brot.

Lögregla fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. Því var hafnað og var hann í dag látinn laus. Niðurstaðan hefur verið kærð til Landsréttar.

Lögreglustjóri lagði kröfuna fram á laugardag en dómari tók sér frest til hádegis í dag til að taka afstöðu til málsins.

Krafan var lögð fram á grundvelli rannsóknarhagsmuna og til að varna því að sakborningur haldi áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið.