Kristján: „Ég er ekkert hræddur við að deyja“

Kristján E. Guðmundsson flutti til Berlínar í Þýskalandi eftir að hann komst á eftirlaun. Hann greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli í fyrra og ákvað í samráði við börnin sín að flytja heim til Íslands. Kristján segir greininguna hafa verið sjokk en að stuðningur Ljóssins hafi skipt sköpum fyrir hann.

„Þegar ég var búinn að fara í gegnum mælingar reyndist það vera þannig að krabbameinið var komið út fyrir blöðruhálskirtilinn. Í beinin, þannig að það var ekki hægt að fjarlægja það,“ segir Kristján.

Kristján ræddi málin í helgarviðtali í Helgarblaði Fréttablaðsins.

Kristján segir eðlilegt að fólk velti fyrir sér lífslíkum þegar það greinist með krabbamein.

„Ég fór strax að gúggla blöðruhálskirtilskrabbamein, þá sérðu strax – þar er rætt um lífslíkur,“ segir Kristján og bætir við að upplýsingarnar sem hafi komið upp hafi snúist að mestu um lífslíkur og hversu hátt hlutfall greindra væri enn á lífi eftir fimm ár.

„Það eru svona greiningar og þá fer maður eðlilega að spekúlera í því hvað þetta er alvarlegt. Ég var búinn að gera mér grein fyrir því að þetta væri komið út í bein og út fyrir blöðruhálskirtilinn,“ segir Kristján og viðurkennir að hann hafi hugsað um það hversu mörg ár hann ætti eftir.

„Ég var alveg sáttur við það að ég ætti kannski ekkert voðalega mörg ár eftir ólifuð.“ Óhjákvæmilega fari fólk að velta lífslíkum fyrir sér.

„Ekki það, ég er ekkert hræddur við að deyja. Það er það sem bíður okkar allra,“ segir Kristján. Greiningin hafi þó verið ákveðið sjokk.

Eftir að Kristján fluttist til Íslands fóru dætur hans með hann í Ljósið sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.

Kristján hefur sótt Ljósið í rúmt ár og vonar hann að aðrir í sömu sporum leiti þangað. „Fólk á endilega að fara þarna og finna andrúmsloftið, hvað það er gott. Því líður miklu betur,“ segir Kristján.

Hægt er að lesa viðtalið við Kristján í heild sinni hér.