Kristján Markús Sívarsson hefur verið ákærður og sakaður um að koma ekki barnsmóður sinni til hjálpar en hún lést úr ofneyslu fíkniefna í fyrra. RÚV greinir frá þessu. Katrín Dröfn Bridde lést þann 24. janúar á síðasta ári.
Katrín var fjögurra barna móðir og hafði átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða. Hafði hún haft betur í baráttunni við Bakkus í dágóðan tíma þar til hún féll árinu áður.
Það var þann 24. janúar árið 2018 sem harmleikurinn átti sér stað á heimili hennar og tóku fíkniefnin enn eina ungu manneskjuna. Þá var greint frá því í fjölmiðlum að leitað var að sambýlismanni Katrínar sem var grunaður um að koma ekki manneskju í neyð til aðstoðar. Kristjáns var leitað allan næsta dag og loks handtekinn. Hann hefur verið ákærður fyrir brot gegn 221. Málsgrein hegningarlaga. Hann gæti átt von á allt að tveggja ára fangelsi.
Þrátt fyrir erfiða baráttu við fíkn reyndi Katrín, að sögn vina og fjölskyldu, að vera góð móðir og til staðar fyrir krakkana fjóra. Elsti drengurinn hefur tekist á við ódæmigerða einhverfu og yngsta dóttir hennar fæddist með hjartagalla.
Katrín var vinamörg og ótal margir sem minntust hennar á samskiptamiðlum með fallegum orðum. Vinkona hennar, Kristín, lýsti Katrínu á þessa leið:
„Kata var með hjarta úr gulli, góð stelpa, sem reyndi margt í lífinu. Alltaf sterk og góð móðir, heimilið fallegt, hreint og fínt.“
Þá var hún sögð vera alltaf til staðar fyrir vini sína. Hún hafi ekki farið í manngreiningarálit, verið sterk og góð móðir, trygg og alltaf til staðar fyrir vinina.