Kristinn Hrafnsson, talsmaður uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli sem sýndur er á Hringbraut annaðkvöld og endursýndur á sunnudagskvöld en þar rekur hann viðburðaríka fréttamannssögu sína síðasta hálfa áratuginn og samstarfið við Julian Assange.
Hann segir þennan yfirmann sinn vera nokkuð þveran mann en afburðagáfaðan og að samstarf þeira hafi gengið vel ef undan eru skildir einstaka árekstrar, en varla hafi hann þó haft betri yfirmann en Assange í allri sinni fréttamannsstíð.
Kristinn rekur afhjúpanir Wikileaks í viðtalinu, meðal annars stríðsglæpi Bandaríkjamanna í Írak þar sem saklaust fólk var skotið niður námnast til skemmtunar þeim sem stýrðu herþyrlunum í fjarska, en Kristinn fór sjálfur til Bagdad eftir árásirnar og hafði uppi á börnum mannsins sem reyndi að koma særðum til hjálpar en var sjálfur skotinn til bana við hjálpræðið.
Kostulegar lýsingar á njósnurum sem fylgst hafa með Kristni og Assange koma einnig við sögu í viðtalinu, en þar ber hæst söguna af því þegar þeir félagar hittust á litla kaffihúsinu Babalú við Skólavörðustíg og njósnari frá bandarísku leyniþjónustunni sem kom þar að gat engan vegin hulið starfa sinn, enda illmögulegt í fámenninu inni á litlum stað að vetri til.
Mannamál eru frumsýnd klukkan 20:30 á laugardagskvöld og endursýnd klukkan 21:00 á sunnudagskvöld.