Kristinn Pétursson, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi 1,2 milljónir króna hjá einkareknu heilbrigðisstofnuninni Klíníkinni Ármúla fyrir að láta skipta um mjaðmarlið hjá sér. Hann hafði fengið sig full saddan af sex mánaða bið á opinberum biðlista eftir aðgerð.
Þessu greinir Kristinn frá í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. „Er búinn að vera á biðlista – ásamt 1000 fleiri Íslendingum eftir því að láta skipta um mjaðmarlið vinstra megin,“ segir Kristinn. „Eftir tveggja ára kvalir, var ég loksins úrskurðaður á \"formlegan opinberan biðlista\" í júlí 2019. Svo eftir 6 mánaða bið - og enga vitneskju um tíma í aðgerð, gafst ég upp og pantði tíma i aðgerð á Klinikinni í Desember.“
Hann segir ferlið hjá Klíníkinni hafa gengið smurt fyrir sig. „Fékk svar strax eftir 10 mín. að ég gæti komið í aðgerð þar 6. janúar,“ heldur hann áfram. Aðgerðin kostaði 1,2 milljónir og segist Kristinn hafa fengið aðstoð frá fjölskyldunni til að borga.
Hann mætti á stofnunina í gær og var settur beint á skurðarborðið. Aðgerðin tók eina og hálfa klukkustund og hann hafi síðan gist eina nótt á Klíníkinni. „Í fyrsta skipti - í heilt ár - svaf ég svo eins og steinn í 6 klst... og vaknaði – eldhress :)“
„Það hefði borgað sig að fara beint á Klinik i júlí (eða fyrr) þá væri ég aftur farinn að vinna FULLA vinnu... losnað við kvalirnar og allt helv.... verkjatöfluátið...“ segir Kristinn sem stefnir nú á fulla vinnu í apríl.