Kristinn fékk að hlusta á einkasamtal sitt sem tekið var upp fyrir CIA

Kristinn Hrafnsson fékk senda hljóðupptöku af samtali sínu við Julian Assange sem hafði verið tekið upp í sendiráði Ekvador í London sem var líklega tekið upp af CIA. Kristinn segir frá málinu á Facebook í dag.

„Fyrir nokkrum mánuðum fékk ég senda hljóðupptöku af samtali okkar Julian Assange sem tekið hafði verið upp með leyndum búnaði í fundarherbergi sendiráðs Ekvadors í London ári áður. Upptakan kom frá lögmönnum okkar á Spáni og fannst við húsleit yfirvalda hjá þarlendu öryggisfyrirtæki sem hafði verið ráðið nokkrum árum fyrr til að sjá um að gæta öryggis Assange og starfsmanna í sendiráðinu,“ segir Kristinn.

„Þegar fleiri gögn fundust og starfsmenn fyrirtækisins voru yfirheyrðir kom á daginn að eigandi þess hafði ákveðið að þjóna tveimur herrum og stunda einnig njósnir fyrir leyniþjónustu Bandaríkjanna. Sá sem átti að vernda Julian ákvað sem sé að grafa undan honum gegn greiðslu.“

Spænski fjölmiðillinn El País greindi einmitt frá því í september í fyrra að spænskt öryggisfyrirtæki hefði stundað njósnir á Assange í sendiráðinu. Þar var jafnvel fylgst með honum á klósettinu og hljóðnemum komið fyrir á öllum stöðum sendiráðsins – líka kvennaklósettinu.

Hæsti réttur Spánar rannsakar nú öryggisfyrirtækið vegna málsins en eigandi þess er sagður hafa fyrirskipað starfsmönnum þess að halda sambandi þess við Bandaríkjamenn leyndu en fyrirtækið sendi CIA samtöl Assange við lögmenn sína og fleiri.

Kristinn segir að samtal hans við Assange hafi verið á meðal þeirra sem tekin voru upp. „Milliliðurinn og greiðandinn í þessari þjónkun við leyniþjónustuna var Sheldon Adelson, einn auðugasti maður Bandaríkjanna, gallharður zínoisti sem byggir auð sinn á rekstri spilavíta í Las Vegas og víða annars staðar. Adelson á einnig drjúgan hlut í Bandaríkjaforseta enda helsti fjárhagslegi bakhjarl Repúblíkanaflokksins og Donald Trump fyrir kosningarnar 2016,“ segir hann.

„Þræðirnir lágu einnig í gegnum Mike Pompeo, sem fyrst var yfirmaður CIA undir Trump, tók síðan við sem utanríkisráðherra, mun sækjast eftir öldungardeildarþingsæti í haust (með fjárhagslegum stuðningi Adelsons) og stefnir liklegast á Hvíta húsið 2024.“

„Verndararnir sem urðu leigunjósnarar streymdu beint frá sendiráðinu í London til Bandaríkjanna þar sem undirbúin var með leynd ákæra á hendur Julian Assange.

Sakleysislegt spjall okkar Julians fór sömu boðleið en við höfðum sterkan grun um þessar njósnir svo að allt sem átti ekki að fara lengra, var pískrað í eyru útí horni eða párað á blöð sem haldið var utan sjónarfæris „öryggis“- myndavélanna.“