Kristinn björnsson er látinn

Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs er fallinn frá á 66. aldursári eftir skammvinn veikindi, en hann var um langt árabil áberandi í íslensku viðskiptalífi.

Krist­inn fædd­ist í Reykja­vík 17. apríl 1950, son­ur Björns Hall­gríms­son­ar for­stjóra og Em­il­íu Sjafn­ar Krist­ins­dótt­ur hús­freyju. Hann varð stúdent frá MR 1970 og lauk lög­fræðiprófi frá Há­skóla Íslands 1975 Hann starfaði sem lög­fræðing­ur hjá borg­ar­verk­fræðingi Reykja­vík­ur­borg­ar 1975-1976 og rak lög­manns­stofu ásamt Gesti Jóns­syni hrl. og síðar Hall­grími B. Geirs­syni hrl. frá 1976-1982.

Krist­inn varð for­stjóri Nóa-Síríus­ar og Hreins hf. árið 1982 og gegndi því starfi til 1990 er hann var ráðinn for­stjóri Skelj­ungs. Krist­inn lét af störf­um hjá Skelj­ungi að eig­in ósk haustið 2003. Frá ár­inu 2005 var hann einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins Líf­l­ands ehf. og starf­andi stjórn­ar­formaður þess.

Krist­inn sat í stjórn­um fjölda fyr­ir­tækja, eins og hjá H. Bene­dikts­syni, Nóa-Síríusi , Sjóvá, Eim­skip, Har­aldi Böðvars­syni hf., Hraðfrysti­húsi Eskifjarðar, Hans Peter­sen, Plast­prenti, Straumi fjár­fest­inga­banka hf. og Lífl­andi ehf.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Krist­ins er Sól­veig Pét­urs­dótt­ir, fv. þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, dóms­málaráðherra og for­seti Alþing­is og eignuðust þau þrjú börn.