Kristinn áfram ritstjóri vestfjarða

Eftir því sem fram kemur hjá Ámunda Ámundasyni auglýsingastjóra hjá Vefpressunni, fyrirtæki Björns Inga Hrafnssonar, eru blöðin 12 sem Fótspor gaf út að koma út á næstu dögum. Hlé hefur orðið á útgáfunni í um 10 vikur frá því að Björn Ingi Hrafnsson keypti útgáfurétt blaðanna í júlí. Virðist samkvæmt ummælum Ámunda sem höfð eru eftir á norðlenskum fréttavef að samkeppnisyfirvöld hafi nú gefið grænt ljós á kaupin en í Morgunblaðinu var haft eftir Birni Inga á dögunum að seinkun á útgáfu blaðanna eftir eigendaskiptin mætti rekja til skoðunar Samkeppniseftirlitsins á því hvort yfirtaka blaðanna væri lögleg. Fyrir kaup blaðanna var Björn Ingi umsvifamikill á íslenskum fjölmiðlamarkaði og á m.a. DV, Pressuna og Eyjuna.

Á akureyri.net kemur fram að Akureyri vikublað leiti nú að nýjum ritstjóra blaðsins. Haft er eftir Ámunda Ámundasyni að nýjar áherslur muni fylgja nýjum ritstjóra. Reykjavík vikublað og Akureyri vikublað eru í hópi fyrrum Fótspors-blaðanna en einnig kemur fram í frétt akureyri.net að blaðið Vestfirðir, sem áður var í eigu Fótspors, komi út á morgun fimmtudaginn 1. október. Kristinn H. Gunnarsson  hafi verið endurráðinn ritstjóri þess blaðs. Í fréttum Stöðvar 2 á dögunum sagðist Kristinn vonast eftir því að Björn Ingi myndi gefa sér tækifæri sem ritstjóra áfram og vitnaði þá í fyrri kynni þeirra á vettvangi stjórnmálanna.