Kristín hafnar því að eiga vúdú-dúkku af Eddu: „Svo weird dæmi“

Áhrifavaldurinn Kristín Péturs segir ekkert hæft í því að hún eigi vúdú-dúkku af Eddu Falak. DV greinir frá.

Áhrifavaldurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og Crossfit stjarnan Edda Falak greindi frá þessu einkennilegu atviki á Twitter, að barnsmóðir fyrrverandi kærasta síns hafi sagst eiga vúdúdúkku í líki Eddu sem hún hafi stundað að stinga í augun.

„Það var svo weird dæmi Þegar áhrifavaldur og barnsmóðir fyrverandi sagðist vera með woodoo dúkku af mér og væri að stinga í augun á mér. Bjánalega fyndið en á sama tíma svo fucked up,“ sagði Edda.

Edda var líklega að tala um leikkonuna Kristínu Pétursdóttur, barnsmóður Brynjólfs Löve Mogensen verkefnastjóra samfélagsmiðla Árvakurs. Edda og Binni, eins og hann er kallaður, voru saman eins og frægt var en leiðir skildu hjá þeim í mars síðastliðnum eftir nokkurra mánaða samband.

DV hringdi í Kristínu sem kannaðist ekki við að eiga slíka dúkku eða stinga hana í augun. Vildi hún ekki ræða málið frekar.