Kristín hættir sem aðalritstjóri

Frá og með deginum í dag tekur nýtt skipurit við hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins.

Kristín Þorsteinsdóttir hættir í dag sem aðalritstjóri Torgs útgáfufélags sem gefur út Fréttablaðið. Kristín hefur verið útgefandi og aðalritstjóri undanfarin fjögur ár en mun nú einbeita sér að rekstri fréttastofunnar og verður áfram útgefandi í aðalstarfi. 

Ritstjórar Fréttablaðsins verða fjórir blaðamenn sem hafa starfað hjá blaðinu, Stöð 2 og visi.is um árabil: Kjartan Hreinn Njálsson, Ólöf Skaftadóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir sem hefur ritstýrt vefútgáfu Fréttablaðsins, www.frettabladid.is. Hörður Ægisson mun áfram ritstýra Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins.

Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir er forstjóri Torgs.