Kristín eysteins í opinskáu mannamáli

Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu var gestur Sigmundar Ernis í einlægu og opinskáu viðtali í þættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld - og deildi þar merkilegri sögu sinni með áhorfendum Hringbrautar.

Kristín hefur notið mikillar velgengni í starfi, enda áhorfendur Borgarleikhússins liðlega 230 þúsund á síðasta ári, en hún ræðir meðal annars við Sigmund Erni hvort það skipti máli að vera kona eða karl við stjórnvölinn, hvernig gott leikverk verður til, hver galdur íslenska leikhússins er, en fáar ef nokkrar þjóðir sækja leikverk af jafn miklu kappi og Íslendingar.

Í viðtalsþættinum, sem hægt er að skoða hér á vef stöðvarinnar, ræðir Kristín líka æsku sína sem var að mörgu leyti sérstök; hún er ættleidd og segir að það hafi aldrei verið launungarmál í fjölskyldu sinni og blessunarlega rætt þar af skilningi, en sjálf var Kristín mjög leitandi í æsku, ætlaði að verða tónlistarkona, helst trúbador, en féll fyrir galdri leikhússins eftir að hafa gefið út fyrstu hljómplötu sína. Hún lýsir því vel hvernig er að móta leikverk, svo og leikarana sem taka þátt í því, en þar gildir samvinnan að hennar sögn, að hlusta fyrst og ákveða svo.

Kristín kom út úr skápnum 18 ára og lýsir því ákaflega vel í viðtalinu hvernig sú uppgötvun á kynhneigð sinni var eins og koma heim, kunna loksins skil á umhverfi sínu og hvernig henni og konu hennar, Katrínu Oddsdóttur, lögmanni tókst að lokum eftir mikla fyrirhöfn að eignast dóttur sem nú er á þriðja ári, en þær Katrín voru fyrsta samkynhneigða parið á Íslandi sem fékk forsamþykki fyrir ættleiðingu barns.

Lífið og leikhúsið er sumsé í forgrunni þessa persónulega samtals Kristínar og Sigmundar Ernis sem er endursýnt í dag og um næstu helgi.