Ósammála um markvörslu hauka

Olísdeildin verður á dagskrá kl.22.30 í kvöld en lokaþátturinn verður síðan á næstkomandi mánudag kl.22.00. Aðspurður segir Krissi Aðalsteins að þáttur kvöldsins sé ,,magnaður.” Þeir félagarnir, hann og Logi Geirs, fara yfir leiki helgarinnar, þar sem Grótta varð Íslandsmeistari í Olísdeild kvenna. Þeir voru hins vegar ósammála um markvörslu Haukaliðsins, eins og sjá má á meðfylgjandi sýnishorni úr þættinum. Krissi og Logi velja mikilvægustu leikmennina að sínu mati og margt, margt fleira. Handboltaumræðan eins og hún gerist best.