Háværar umræður um mál Samherja og hinnar svokölluðu skæruliðadeildar sköpuðust inni á lokuðum hópi Samfylkingarinnar. Voru gerðar kröfur um að gerður yrði listi yfir Samherjamenn og þeirra menn innan flokksins. Greint var fyrst frá þessu á DV.
Kjartan Valgarðsson, formaður framkvæmdastjórnar flokksins, gerði málið að umtalsefni í hópnum og sagði: „Undirróður og aðför að lýðræði í landinu tel ég vera svo alvarlegt mál, svo mikla ógn að ekki verði við unað,“ segir hann. „Frá og með þessari helgi snúast komandi kosningar um Samherja. Ertu með Samherja eða ertu á móti.“
Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður flokksins, sem hefur skrifað heila bók um reynslu sína af samsærum og spillingu á Íslandi svarar honum og segir:
„Ég er orðin eldri en tvævetur og hef séð ýmislegt í sambandi við tengsl Samherja við stjórnmálaflokkana, hvernig þeir vinna og hafa sína þræði allstaðar. Samfylkingarfólk má ekki vera svo bláeygt að halda að þeir eigi ekki sína fulltrúa í okkar flokki – því það eiga þeir. Hvað athugist. Þess vegna mun líklega aldrei takast að virkja flokkinn af neinu viti í þessu máli, því það verður þyrlað upp ryki og moldviðri um aukaatriði, umræðunni drepið á dreif, talað um „fólkið á gólfinu“ sem ekki megi styggja og þar fram eftir götum. Því miður. Þetta er svona.
PS: Og þegar allt um þrýtur verður farið það að gera tortryggilegt það fólk sem heldur uppi gagnrýninni. Þetta hefur allt gerst áður.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ráðherra sem er nýhætt sem formaður BHM til að fara aftur á þing, segir að hún vilji ekki gera Samherjamönnum það til geðs.
Hallgrímur Helgason, rithöfundur, svaraði henni:
„Enga kurteisi, full force gegn þeim, nú duga engin vettlingatök, fokking samherjastjórn!“
Einn flokksmaður krafðist þess að fá nafnalista með Samherjamönnum innan Samfylkingarinnar frá Ólínu. „Við hin sem sjáum ekki skratta í hverju horni og höfum ekki verið í toppstöðu og því ekki með yfirsýn – bíðum spennt.“