Saksóknari krefst 12 ára fangelsisdóms yfir föngunum Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni sem grunaðir eru um að hafa banað samfanga sínum, Sigurði Hólm á Litla-Hrauni fyrir hálfu fjórða ári.
Málið hefur velkst um dómskerfið lengi og hafa þeir Annþór og Börkur haft réttarstöðu grunaðra um árabil, en þeir hafa statt og stöðugt borið því við að þeir hafi verið að hjálpa Sigurði í nauð og fráleitt gengið í skrokk á honum eins og ákæruvaldið hefur haldið fram.
Málsatvik eru þau að þann 17. maí 2012 barst lögreglu tilkynning um að Sigurður Hólm hefði látist í klefa á Litla-Hrauni og að óskað væri aðstoðar rannsóknarlögreglumanns. Rannsókn málsins tók breytingum nokkrum dögum síðar þegar réttarmeinafræðingur tilkynnti lögreglu að Sigurður hefði látist sökum innvortis blæðinga. Réttarmeinafræðingurinn taldi áverkana af völdum höggs en gat ekki sagt til um hvort miltað hefði rofnað sökum þess að Sigurður hefði verið barinn eða hvort hann hefði fallið í klefa sínum.
Samhliða voru myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum Litla-Hrauns yfirfarnar og vaknaði þá grunur um að andlát Sigurðar væri af mannavöldum, en þeir Annþór Kristján og Börkur sáust fara inn í klefa Sigurðar nokkru áður en tilkynning barst um andlát hans.
Saksóknari segir nú undir lok réttarhaldanna yfir Annþóri Kristjáni og Berki að enda þótt sekt þeirra teljist ekki hafin yfir allan vafa séu málsatvik og kunn ofbeldishneigð þeirra félaga með þeim hætti að telja verði sektina hafna yfir skynsamlegan vafa.
Verjendur Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar gagnrýna rannsókn lögreglu á andláti samfanga Annþórs og Barkar. Ósannað sé að maðurinn hafi dáið af völdum ofbeldis.
Dómur í málinu fellur á allra næstu dögum.