Umboðsmaður Alþingis úrskurðaði síðasta sumar að áralöng framkvæmd Tryggingastofnunar ríkisins við búsetuskerðingar stæðist ekki lög. Velferðarráðuneytið (nú félagsmálaráðuneytið) samþykkti þessa niðurstöðu og mat það svo að sá hópur sem verður fyrir búsetuskerðingum sé hlunnfarinn um hálfan milljarð króna á ári. Formaður ÖBÍ segir það ótækt að stjórnvöld haldi áfram með þessa ólöglegu framkvæmd og beri að greiða þessum hópi bætur tafarlaust.
„Hvaðan fá stjórnvöld þær hugmyndir að þau geti haldið áfram með ólöglega framkvæmd? Það á strax að fara að greiða út eftir löglegum leiðum og bæta þann skaða sem hefur valdið mörgum ótrúlegum og óþörfum erfiðleikum um langan tíma,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Í fréttatilkynningu frá ÖBÍ segir að stjórnvöld hafi engar heimildir fyrir ólöglegum búsetuskerðingum og eigi að hætta þeim. Fram kom í máli Ásmundar Einars Daðasonar, félagsmálaráðherra, á opnum fundi velferðarnefndar Alþingis í vikunni, að öryrkjar sem hafa verið hlunnfarnir með ólögmætum búsetuskerðingum gætu fengið leiðréttingu á næsta ári. ÖBÍ bendir þó á að enn hefur TR ekki breytt verklagi sínu og haldi því áfram ólöglegum skerðingum. Bandalagið veltir fyrir sér hvers vegna TR hafi ekki látið af þessari framkvæmd og hvers vegna stjórnvöld stöðvi hana ekki nú þegar.
ÖBÍ segir það fagnaðarefni að stjórnvöld setji á dagskrá að endurgreiða öllum þeim sem voru skertir með ólögmætum hætti árum saman. Félagsmálaráðherra og önnur stjórnvöld hafa haldið því fram að fara þurfi yfir mál hvers og eins einstaklings til þess að reikna út endurgreiðslu. Þuríður Harpa veltir því fyrir sér hvernig standi á því að ekki sé hægt að endurgreiða eða hætta þessari ólöglegu framkvæmd fyrr en búið sé að fara yfir mál hvers og eins.
„Hvernig er stjórnvöldum stætt á því að ætla að skerða hverja og eina af þessum manneskjum með sama ólögmæta hættinum og hingað til? Það sjá allir að þessi málflutningur stenst enga skoðun og stjórnvöld hafa engar heimildir til að skerða fólk með þessum hætti. Við erum að tala um rosalegar skerðingar hérna. Það eru dæmi um að fólk fái aðeins 80 þúsund krónur á mánuði til framfærslu. Auðvitað gengur þetta engan veginn upp.“