Þingflokkur Pírata krefst tafarlausrar afsagnar Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um málsmeðferð hennar við skipan dómara í Landsrétt. Píratar telja niðurstöðuna áfellisdóm yfir athöfnum Sigríðar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Pírötum.
„Dómurinn sýnir svo ekki verður um villst að með ólögmætri skipan sinni hafi dómsmálaráðherra stuðlað að mannréttindabrotum í garð allra þeirra sem hafa þurft að sæta málsmeðferð af hálfu ólöglega og pólitískt skipaðra dómara,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir einnig að Píratar hafi ítrekað bent á að skipanin væri ólögmæt og að athafnir Sigríðar væru óforsvaranlegar og brot á 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. Það hafi nú verið staðfest bæði af Hæstarétti og af Mannréttindadómstól Evrópu.
Píratar telja málið skýrt dæmi um spillingu. „Landsréttarmálið er skýrt dæmi um óeðlileg afskipti framkvæmdavaldsins af dómsvaldinu og pólitíska spillingu. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar í dag munu koma til með að skera úr um traust almennings til Alþingis, dómstóla og framkvæmdavaldsins til framtíðar.“
Vegna þessa gerir þingflokkur Pírata kröfu um tafarlausa afsögn Sigríðar. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, hefur einnig kallað eftir því að dómsmálaráðherra komi á opinn fund í allsherjar- og menntamálanefnd vegna dómsins og að fram fari sérstakar umræður við forsætisráðherra á Alþingi um áhrif dómsins á réttarríkið á Íslandi.