Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur óskað eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg vegna Braggamálsins svokallaða. Nefndin sendi borginni bréf þar sem sérstaklega er óskað eftir upplýsingum sem ekki komu fram í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar vegna málsins. Fréttablaðið greinir frá.
Bréfið var lagt fram á á fundi borgarráðs fyrir helgi og er nú á borði fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar, sem hefur 30 daga til að bregðast við.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir í samtali við Fréttablaðið að sjaldgæft sé að eftirlitsnefndin þurfi að óska eftir upplýsingum um einstök mál frá sveitarfélögum. „Þarna er verið að kalla eftir ástæðum þess að ekki var brugðist við ábendingum innri endurskoðunar um útgjöld. Í Braggamálinu var farið langt fram úr heimildum og ef það hefði verið farið eftir þessum ábendingum þá hefði Braggamálið og önnur slík ekki getað komið fyrir. Eftirlitsnefndin, ég og margir borgarbúar viljum vita hvernig þetta gat gerst þegar það var búið að benda á að málin voru í ólestri.“