Stúdentar mættu á samstöðufund fyrir utan Lánasjóð íslenskra námsmanna í morgun, þar sem þeir kröfðust þess að sjóðurinn hækki framfærslu og frítekjumark. Stúdentarnir krefjast þess að þessar breytingar gangi í gegn fyrir skólaárið 2019-2020. Fréttablaðið.is greinir frá.
Stjórnarfundur LÍN fór fram á sama tíma í húsakynnum sjóðsins í Borgartúni og greinir Fréttablaðið frá því að þar hafi verið ákveðið hvort eða hvernig reglum sjóðsins yrði breytt fyrir skólaárið 2019-2020. Þó hefur ekkert verið gefið út opinberlega um niðurstöður fundarins.
Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) stóðu fyrir samstöðufundinum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður samtakanna, segir í samtali við Fréttablaðið að kröfurnar séu sanngjarnar. „Við getum ekki séð hvernig það á ekki að vera hægt að koma til móts við þær. Við höfum fengið mjög víða samstöðu frá ýmsum aðilum. Það skipti okkur miklu máli að fá stuðning frá rektorum allra háskólanna, að fá þá til að standa við bakið á okkur.“