Krefjast breytinga á fjölmiðlalögum

Fimm stjórnendur stærstu einkareknu ljósvakamiðla landsins hafa skorað sameiginlega á stjórnvöld að breyta fjölmiðlalögum. Stjórnendur Símans, 365 fjölmiðla, sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN, Útvarps Sögu og miðla Hringbrautar sendu í dag áskorun til allra þingmanna og stjórnarráðsins um að gera nauðsynlegar, málefnalegar og tímabærar breytingar á íslenskri löggjöf til þess að jafna samkeppnisstöðu félaga á íslenskum fjölmiðlamarkaði, eins og það er orðað í sameiginlegu plaggi miðlanna.

Þar stendur einnig:  „Telja undirritaðir aðilar, sem allir starfa á íslenskum fjölmiðlamarkaði, að innlendir ljósvakamiðlar hafi vart möguleika til að halda áfram starfsemi sinni miðað við núverandi lagaumhverfi af margvíslegum ástæðum. Því er nauðsynlegt að ráðherrar og Alþingi ráðist í umfangsmiklar breytingar á íslenskri löggjöf við fyrsta tækifæri - ljósvakamiðlum, neytendum og auglýsendum á íslenskum markaði til bóta“.  Þá er þess krafist að RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði.

Samstaða svo margra miðla um breytingar á fjölmiðlalögum hefur ekki áður náðst.  Undir áskorunina skrifa Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, Orri Hauksson, forstjóri Símans, Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri ÍNN, Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Sögu og Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Hringbrautar. 

\"\"