\"Enn á ný bregðast ráðherrar trausti þjóðarinnar. Í ljósi nýjustu frétta blasir við að óbætanlegur trúnaðarbrestur er kominn upp milli ráðherra og þjóðar, einn af fjölmörgum trúnaðarbrestum á kjörtímabilinu.\"
Svo segir í ákyktun sem Reykjavíkurfélag Vinstri grænna hefur sent frá sér.
\"Eina leiðin til að byggja á ný traust milli ríkisstjórnar og þjóðar er að núverandi ríkisstjórn skili inn umboði sínu, boðað verði til kosninga og ný ríkisstjórn mynduð. VG í Reykjavík krefst þess að ríkisstjórnin skili inn umboði sínu og boði til kosninga. Það litla traust sem Alþingi hefur enn er í húfi.\"