Hópur fólks hefur hrundið af stað undirskriftalista þar sem afsagnar Ólafar Nordal innanríkisráðherra er krafist.
Ástæðan er að albönskum fjölskyldum sem dvalið hafa hér á landi um skeið verður vísað úr landi.
Stór orð hafa fallið af hálfu margra þjóðþekktra einstaklinga um lögregluaðgerð í nótt þar sem fjölskylda var flutt í rútu burt frá heimili sínu í Reykjavík. Henni verður að óbreyttu vísað úr landi. Þriggja ára langveikur drengur er með í för en pabbi hans sem starfað hefur hér gæti lent í lífshættu við komuna út.
Um tvö hundruð manns hafa rita undir áskorun um að Ólöf Nordal segi af sér. Að óbreyttu hyggst hún ekki beita sér í málum Albananna. Hér má sjá hlekk á kröfuna.
Karl Ágúst Úlfsson er meðal þeirra fjölmörgu sem segjast skammast sín fyrir eigið þjóðerni í dag eins og Hringbraut hefur fjallað um.