Kreditkortavelta orðin söm og 2007

Notkun kreditkorta er orðin sú sama og hún varð mest fyrir bankahrunið haustið 2008 að því hringbraut.is hefur heimildir fyrir. Þetta er veruleg breyting frá því á fyrstu misserum eftir hrunið, en þá hrundi notkun á kreditkortum á nokkrum vikum og við tóku debetkort eða greiðslufé af ótta almennings að eiga ekki fyrir fjárútlátum sem fólu í sér greiðslufrest.


Önnur stór tíðindi úr greiðslukortaviðskiptum Íslendinga eru þau að eyðsla þeirra er nú orðin meiri en hún var þensluárið 2007 sem að sögn sérfræðinga ber ótvírætt vitni um aukna bjartsýni landsmanna og tiltrú á vinnu og verðlag.


Greiðslukortaviðskipti á Íslandi hafa í heildina aukist að mun á allra síðustu árum og er skýringarinnar ekki aðeins að finna í endurheimtri kaupgleði Íslendinga heldur og auknum straumi erlends ferðafólks til landsins. Þar vegur greiðslukortanotkun þungt. Það sést kannski best á því að endurgeiddur virðisaukaskattur af kaupum útlendinga hér á landi á síðasta árfi nam 1,6 milljarði króna, tvöfalt hærri upphæð en fyrir fjórum árum.