Krataflokkarnir að þurrkast út?

Könnun Fréttablaðsins sem birt var í dag um fylgi við stjórnmálaflokka bendir til að krataflokkarnir tveir eigi sérlega erfitt uppdráttar. Samfylkingin er komin undir 10% og Björt framtíð með 2,9% fylgi.

Sjálfstæðisflokkur heldur sínu með 29,3% fylgi. Píratar eru enn stærstir sbr. fyrri kannanir, Píratar myndu fá 36% allra atkvæða ef veruleikinn yrði í samræmi við könnun Fréttablaðsins.

Samfylkingin hefur 8,2 prósenta fylgi, VG 9,9 prósent og Framsóknarflokkurinn 9,9 prósent

Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1215 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 10. og 11. nóvember. Svarhlutfallið var 65,8 prósent. Alls tóku 61,1 prósent þeirra sem náðist í afstöðu.

Lesa má meira um könnunina hér